Geirlandsá
Staðsetning
Geirlandsá á Síðu er staðsett í V-Skaftafellssýslu og er án vafa ein af bestu sjóbirtingsám landsins.
Veiðivon er fyrst og fremst mjög vænn sjóbirtingur með þó nokkurri laxveiði og bleikjuvon.
Áin er 22 km löng bergvatnsá og á upptök sín í Geirlandsárbotnum sem er í 500-600 m.h.y.s. upp á vesturhálendi Kaldbaks. Fiskgengi hluti árinnar er um 12 km langur sem nær upp að Hagafossi. Fyrir neðan fossinn rennur áin í hrikalega fögrum gljúfrum sem breikka svo er neðar dregur en þar fer áin að sveigja um gljúfurbotninn og rennur svo um flatlendi þar sem malarbotn er og að lokum á söndum.
Leiðarlýsing að húsi
Ekið er sem leið liggur eftir þjóðvegi 1 til Kirkjubæjarklausturs. Beygt er við hringtorgið á Kirkjubæjarklaustri og keyrt inn áfram um 3 km á veg 203 sem er Geirlandsvegur.
Þar skammt innan við bæinn Geirland er tekin vinstri beygja inn heimreiðina að veiðihúsinu sem er staðsett í skógarlundi undir fjallinu Kylli.
Veiðihús
Gott veiðihús er við ána með fjórum tveggja manna herbergjum (kojur), eldhúsi, setustofu, baðherbergi með salerni og sturtu. Útbúið helstu raftækjum ásamt eldavél með bakarofni.
Gasgrill er á staðnum.
Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Veiðimenn leggja sjálfir til sængur, sængurfatnað, tuskur og viskustykki.
Öll aðstaða við Geirlandsá er góð og hvetjum við fólk til þess að nýta sér þann möguleika að kaupa veiðileyfi á sumartímanum gegn vægu gjaldi og njóta hússins og útiverunnar.
Ódýr sumarleyfi
Tíminn frá 20. júní til 5. ágúst eru seldir 3 dagar saman.
(hálfur, heill, heill, hálfur dagur)
Leyfilegt er að veiða á fjórar stangir þessa sumardaga. Hvert holl kostar til félagsmanna 58,800 krónur nema tímabilið 2/8-5/8 sem kostar kr. 98,400.
Veiðihús er innifalið í öllum verðum.
Veiðitilhögun
Vorveiði
Fjöldi stanga: 4
Skipting daga: Tveggja daga holl (hálfur, heill og hálfur dagur)
Veiðitími: 1. apríl – 31. maí
Agn: Fluga og spónn
Kvóti: 3 fiskar á stöng pr dag
Sleppskylda er á öllum niðurgöngufiski (hrygningarfiski)
Sumarveiði
Fjöldi stanga: 4
Skipting daga: Þriggja daga holl (hálfur, heill, heill og hálfur dagur)
Veiðitími: 20. júní – 5. ágúst
Agn: Fluga, spónn og maðkur
Kvóti: 3 fiskar á stöng pr dag
Æskilegt að sleppa öllum sjóbirtingum sem eru 70 cm eða lengri
Haustveiði
Fjöldi stanga: 4
Skipting daga: Tveggja daga holl (hálfur, heill og hálfur dagur)
Veiðitími: 5. ágúst – 18. október
Agn: Fluga, spónn og maðkur
Kvóti: 3 fiskar á stöng pr dag
Æskilegt að sleppa öllum sjóbirtingum sem eru 70 cm eða lengri
Daglegur veiðitími:
1. apríl til 1. maí frá kl 7-13 og 15-21
1. maí til 14. ágúst frá kl 7-13 og 16-22
14. ágúst til 18. okt frá kl 7-13 og 15-21
Seld eru leyfi til 18. október þar sem leyfi fékkst fyrir framlengingu síðasta ár, ef einhverra hluta vegna framlenging verði ekki heimiluð verða þau veiðileyfi sem seld eru þann tíma endurgreidd. Einnig er rétt að vekja athygli á því að einnig gæti orðið um veiðitakmarkanir á einhvern hátt að ræða í framlengingu t.d. eingöngu veitt á flugu og jafnvel sleppiskyldu á veiddum fiski.
Sækja veiðikort
Verðskrá Geirlandsá
Verð á stöng pr. dag
Vorveiði
Tveggja daga holl með skiptingu á miðjum degi.
Dag Stangir Félagsmenn Aðrir
3/4-19/4 4 25.500,- 29.325,-
19/4-1/5 4 19.900,- 22.885,-
1/5-31/5 4 12.900,- 14.840,-
Vikudvöl
Fimmtud.-fimmtud. með skiptingu á miðjum degi
31/5-14/6 4 2.600,- 2.990,-
Sumarveiði
Þriggja daga holl með skiptingu á miðjum degi
24/6-2/8 4 4.900,- 5.635,-
2/8-5/8 4 8.200,- 9.430,-
Haustveiði
Tveggja daga holl með skiptingu á miðjum degi
5/8-7/8 4 15.000,- 17.250,-
7/8-13/8 4 22.600,- 25.990,-
13/8-31/8 4 26.000,- 29.900,-
31/8-18/10 4 52.200,- 60.030,-
Veiðihús er innifalið í öllum verðum
Veiðistaðalýsing
Heimilisfang
Hafnargötu 15 eh
230 Keflavík
Símanúmer
421-2888
Tölvupóstur
svfk@svfk.is