Ganga í félagið
Afhverju að ganga í félagið?
Í hröðum heimi snjalltækja þá gleymist stundum að góðir hlutir gerast hægt. Stangveiði er íþrótt sem æfir þolinmæði og þrautsegju. Það þarf nefnilega slatta af þolinmæði og þrautsegju til að ná fisk nema veiðimaðurinn sé þeim mun heppnari.
Stangveiði er heilsubætandi íþrótt sem tengir saman kynslóðir, veiðin er fjölskylduvæn íþrótt og svo sannarlega hæfni sem vert er að kunna. Það að fara út að veiða í íslenskri náttúru í góðum félagsskap og slaka á við árbakkann, er talið hafa róandi áhrif á líkamann, lækka blóðþrýsting og draga úr streytu og kvíða. Það er jú fátt sem toppar útivist í íslenskri náttúru í góðum félagsskap.
Stangveiðifélag Keflavíkur var stofnað 1958 og stendur traustum fótum. Markmið félagsins er að útvega félagsmönnum veiðileyfi og að hafa veiðisvæðin sem fjölbreyttust. Félagið er bæði með veiðisvæði á leigu og einnig eru tekin leyfi í umboðssölu. Allt kapp er lagt á að dvöl veiðimanna á veiðisvæði sé sem best og að allir gangi ánægðir til veiða
Kostir þess að gagna í félagið eru fjölmargir en þeir helstu eru:
- Forgangur að veiðileyfum
- 15% afsláttur af veiðileyfum
- Veiðikortið með afslætti
- Félagsblað SVFK
- Veiðimannakvöld og árshátíð
- Flugukast og hnýtingarnámskeið
Inntökugjald
Fyrir 16 ára og eldri- Innifalið er inntöku- og félagsgjald fyrir fyrsta árið.
- Félagsgjöld eru eftir fyrsta árið 8.000kr á ári fyrir 16 ára og eldri.
Inntökugjald
Yngri en 16 ára og makar félagsmanna- Innifalið er inntöku- og félagsgjald fyrsta árið.
- Félagsgjöld eru eftir fyrsta árið 3.250kr á ári fyrir yngri en 16 ára og maka félagsmanna.
Heimilisfang
Hafnargötu 15 eh
230 Keflavík
Símanúmer
421-2888
Tölvupóstur
svfk@svfk.is