Vorveiðireglur
Vorveiði
Athugið sérstaklega
Öll veiðileyfi eru stíluð á ákveðnar dagsetningar án þess að ljóst sé hvort ís sé farinn af ánum og vegir færir.
Engum er þó heimilt að fara til veiða fyrr en forsvarsmaður veiðiréttareigenda á hverjum stað tilkynnir að aðstæður séu orðnar viðunandi.
Fari svo að ekki sé fært til veiða fyrstu dagana í apríl en einhverjir hafi keypt veiðileyfi á þeim tíma, er þeim
heimilt að velja sér veiðidaga úr því sem óselt er á vorveiðitímanum. Þeir sem eiga veiðiferð með fyrstu dagsetningunni velja fyrstir og síðan aðrir í sömu röð og dagsetningar segja til um.
Árnefnd notar fyrsta veiðitímabilið eftir að tilkynnt er að hægt sé að veiða á viðkomandi stað.
Heimilisfang
Hafnargötu 15 eh
230 Keflavík
Símanúmer
421-2888
Tölvupóstur
svfk@svfk.is