Dagar í Langá á Mýrum, Laugardalsá, Laxá í Aðaldal, Gufudalsá, Flókadalsá-Efri, Gljúfurá og Vatnsdalsá í Vatnsfirði

SVFK hefur fengið nokkra veiðidaga í umboðssölu  frá SVFR.
Þeir dagar sem um ræðir eru í Langá á Mýrum, Laugardalsá í Ísafjarðardjúpi og Laxá í Aðaldal-Miðsvæði, Gufudalsá, Flókadalsá-Efri, Gljúfurá og Vatnsdalsá í Vatnsfirði

Dagarnir verða í skjalinu með þeim leyfum sem laus eru til umsóknar og standa eingöngu félagsmönnum til boða á meðan á forúthlutun stendur.
Hér fyrir neðan eru helstu upplýsingar um árnar en farið er nánar í gegnum þær í félagsblaðinu/söluskránni okkar.

Langá á Mýrum er ein gjöfulasta laxveiðiá landsins og býður upp á fjölbreytta veiðistaði með góðu aðgengi en alls eru 93 skráðir veiðistaðir.
Meðalveiði síðustu 10 ára er 1236 laxar
Veiðihúsið Langárbyrgi er á bökkum Langár og er með þjónustu eins og best verður á kosið og er með 12 tveggja manna herbergjum með sér baðherbergi. Einnig er gufubað á staðnum þar sem menn geta látið líða úr sér.
Full þjónusta er í húsinu allan veiðitímann

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag

Þrír dagar, (hálfur, heill, heill, hálfur)
Hægt að kaupa staka stöng

Dags            Stangir   Félagsmenn
18/7-21/7        12         268,000,-

Tveir dagar, (hálfur, heill, hálfur)
Dags            Stangir   Félagsmenn
15/8-17/8        12          126,000,-
5/9-7/9            12          104,000,-

Fæðisgjald á mann pr. dag
3/7-20/8    1 á stöng 45,900,  2 á stöng 40,900,-
20/8-23/9  1 á stöng 34,900,  2 á stöng 39,900,-

Veiðitilhögun

Fjöldi stanga: 12
Agn:
Fluga
Kvóti: Einn fiskur á vakt á stöng undir 70 cm. Sleppa skal öllum fiski 70cm og lengri

——————————————————————————————————–

 

Laugardalsá er við Ísafjarðardjúp og rennur til sjávar í vestanverðum Mjóafirði.
Hún er nett þriggja stanga laxveiðiá með magnaða veiðistaði og vatnshraðinn kjörinn fyrir
fluguveiði. Það veiðist einnig vænn silungur í ánni og vötnunum sem fylgja.
Þarna er mjög gott hús og sjálfsmennska, pláss fyrir 10 manns í húsi og frábær staður fyrir fjölskylduveiði.
Meðalveiði síðustu (2016-2023) er 131 lax, mest veiddist árið 2016 en þá veiddust 229 laxar.
Áin hentar vel smærri hópum sem vilja njóta sín í einstöku náttúruumhverfi og fá að vera útaf fyrir sig
Veiðifélagið hefur verið að sleppa töluverðu af seiðum síðustu 2 sumur og er það von manna að það skili sér inn í veiðina í sumar, þá gæti orðið veisla þarna.

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman

Tveir dagar, (hálfur, heill, hálfur)

Dags            Stangir   Félagsmenn
17/7-19/7        3            117,000,-
6/8-8/8           3            117,000,-
16/8-18/8        3            117,000,-

Veiðitilhögun

Fjöldi stanga: 3
Skipting daga:
Hálfur heill og hálfur
Agn:
Fluga
Kvóti:
Fluga og öllum laxi sleppt

———————————————————————————————————

 

Laxá í Aðaldal-Miðsvæði Laxá í Aðaldal er ein frjósamasta á landsins. Miðsvæðið samanstendur af veiðistöðum fyrir landi jarðanna Jarlsstaða, Hjarðarhaga, Tjarnar og núna Ytra Fjalls líka.
Svæðið er frábær blanda af landsþekktum stórlaxastöðum og fjölbreyttum urriðastöðum.
Á hverju ári koma laxar um og yfir 20 pund og 70 cm urriðar.
Merktir staðir eru um 30 en það má segja að svæðið sé einn veiðistaður í gegn ef að veiðimenn eru á höttunum eftir bæði lax og urriða. Fjölbreytnin er gríðarleg en það eru fá svæði ef einhver sem bjóða uppá allar tegundir veiðistaða ef að fossaveiði er fráskilin.  Aðgengi er frábært þar sem að keyrt er að öllum stöðum.
Veiðihúsið er bóndabærinn að Jarlsstöðum en þar eru 4 svefnherbergi og rúm fyrir 6 manns. Baðherbergi með baði og sturta í þvottahúsi. Það er heitur pottur og grill í húsinu.
Þrifagjald kr 44,000 greiðist aukalega á staðnum

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman
Tveggja og þriggja daga holl

Dags         Stangir      Félagsmenn
13/6-15/6        3            64,000,-
27/6-30/6        3            64,000,-
24/7-26/7        3            79,000,-
8/8-10/8          3            79,000,-

Veiðitilhögun
Agn:
Fluga
Kvóti: Öllu sleppt nema það má hirða 2 urriða á stöng á dag
——————————————————————————————————–

Gufudalsá á Vesturlandi er gjöful bleikjuveiðiá, tilvalin fyrir alla fjölskylduna. Þarna hafa ungir veiðimenn oft á tíðum stigið sín fyrstu skref í veiðimennsku. Sjógengin bleikja veiðist bæði í ánni og vatninu, mest í kringum eitt pund, en einnig bleikjur allt að fjögur pund. Nokkrir tugir laxa hafa veiðst síðustu árin. Mest veiðist á flugu. Aðgengi að veiðistöðum er gott og gott veiðihús er við ána. Töluvert af veiðinni kemur á land úr Gufudalsvatni en mikilvægt er að það gári aðeins ef fiskur á að taka þar.
Veiðihúsið er stórt og í mjög góðu standi eftir miklar endurbætur vorið 2017. Þar eru sex tveggja manna herbergi, fjögur með rúmum og tvö með kojum. Einnig er heitur pottur á staðnum.

Verðskrá
Verð fyrir 1 stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman
Þriggja daga holl


Dags         Stangir      Félagsmenn

27/8-30/8        4            35,800,-

Veiðitilhögun
Agn:
Fluga, maðkur og spónn.
Það er engin kvóti en veiðimenn eru beðnir um að sýna hófsemi
——————————————————————————————————–

Efri Flókadalsá í Fljótum er frábært sjóbleikjusvæði og hefur veiðin þar síðastliðin ár verið mjög góð. Sjóbleikja veiðist nær eingöngu á svæðinu þó svo að lax og urriði slæðist líka upp á vatnasvæðið. Svæðið nær frá Flókadalsvatni og fram að afréttargirðingu en umhverfi hennar þykir friðsælt og er áin nokkuð vatnsmikil. Kvóti er 8 bleikjur á vakt per stöng en urriði er fyrir utan kvótann.
Veiðihúsið er staðsett við bæinn Stóru-Reyki. Það er lítið en notalegt með tveimur herbergjum og svefnplássi fyrir sex. Allar helstu nauðsynjar eru til staðar í húsinu en veiðimenn koma sjálfir með sængurföt og handklæði

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman
Tveggja og þriggja daga holl


Dags         Stangir      Félagsmenn
25/6-28/6        3            33,700,-
30/8-1/9          3            33,700,-

Veiðitilhögun
Agn:
Fluga og maðkur
Kvóti: 8 bleikjur
——————————————————————————————————–

Gljúfurá er þriggja stanga laxveiðiá í fögru umhverfi Borgarfjarðar. Veiðistaðir eru fjölmargir og fjölbreyttir og hentar áin afar vel fyrir bæði flugu- og maðkveiði. Þó svo að Gljúfurá henti víða vel til fluguveiða hefur stærsti hluti laxveiðinnar fengist á maðk.
Áin er liðlega 20 kílómetra löng á með afar sérstökum upptökum en hún klýfur sig út úr farvegi Langár um tvo kílómetra fyrir neðan Langavatn. Áin er fiskgeng um 11 kílómetra upp að Klaufhamarsfossi og eru um 60 merktir veiðistaðir í ánni, hver öðrum skemmtilegri, enda fjölbreytnin eitt aðalsmerki árinnar.
Veiðihúsið er bjart, rúmgott og mjög vel útbúið með svefnpláss fyrir átta manns í fjórum tveggja manna herbergjum. Allur helsti eldhús- og borðbúnaður er til staðar ásamt sjónvarpi í stofu. Að auki er góður sólpallur með heitum potti og gasgrilli við húsið.
Skylda er að kaupa þrif. 6 gestir í húsi kr 44,000 með uppábúnum rúmum.

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman

Tveir dagar, (hálfur, heill, hálfur)

Dags            Stangir   Félagsmenn
12/7-14/7        3            108,600,-
21/8-23/8        3            93,400,-

Veiðitilhögun

Fjöldi stanga: 3
Skipting daga:
Hálfur heill og hálfur
Agn:
Fluga og maðkur
Kvóti: 2 laxar á vakt
——————————————————————————————————–

Vatnsdalsá í Vatnsfirði er lítil tveggja stanga á sem býður upp á bæði lax- og bleikjuveiði.
Mikið er af vænni bleikju á svæðinu. Ársvæðið hentar sérlega vel fyrir fjölskyldur eða tvo til fjóra veiðifélaga. Efri hluti árinnar rennur úr Öskjuvatni um 2,5 km. leið í Vatnsdalsvatn og rennur neðri hluti árinnar úr Vatnsdalsvatni um 1 km. til sjávar. Heimilt er að veiða með tvær stangir til viðbótar í vatninu. Áin hefur átt sína aðdáendur í gegnum árin en síðustu tvö ár hefur hún lítið verið veidd. Áin hefur verið að skila um 30-110 löxum á sumri eftir ástundun.
Með ánni fylgir veiðikofinn Stöng sem knúinn er áfram af sólarrafhlöðu. Veiðikofinn er lítill en notalegur með frábæru útsýni.Þar er að finna svefnaðstöðu fyrir tvo til fjóra, með tvíbreiðu rúmi og tvöföldum svefnsófa, einfalt eldhús með ísskáp og gashellu í opnu alrými með litlu salerni inn af.. Rétt er að benda á að Flókalundur er í göngufæri en þar er flott tjaldstæði auk sumarhúsabyggðar sem er í útleigu hjá stéttarfélögum.

Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Hollið eingöngu selt saman

Tveggja og þriggja daga holl

Dags            Stangir   Félagsmenn
24/7-27/7        2            60,000,-
3/8-5/8            2            65,000,-
14/8-17/8        2            60,000,-

Veiðitilhögun

Fjöldi stanga: 2
Skipting daga:
Hálfur heill og hálfur
Agn:
Fluga og öllum laxi sleppt