SVFK hefur fengið nokkra veiðidaga í umboðssölu frá Kolskegg.
Dagarnir sem um ræðir eru í Eystri-Rangá, Hólsá Austurbakka Aðalsvæði og Affallinu í Landeyjum og standa eingöngu félagsmönnum SVFK til boða þar til forúthlutun lýkur.
Eftir það verður dögunum skilað.
Nánari upplýsingar verða í söluskrá félagsins sem verður dreift í hús á næstunni
Eystri Rangá
Hefur á undanförnum árum skipað sér sess sem ein albesta laxveiðiá landsins en meðalveiði síðustu fimm ára er 4300 laxar á ári en sumarið 2020 veiddust 9070 laxar í ánni. Áin er þekkt fyrir afar góða og mikla veiði.
Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Heilir dagar án gistiskyldu, veitt frá morgni til kvölds
Hægt er að kaupa stakar stangir
Dags Stangir Félagsmenn
21/9 18 76,000,-
22/9-23/9 18 78,000,-
24/9-25/9 18 76,000,-
26/9-27/9 18 86,000,-
28/9-29/9 18 69,000,-
30/9 18 62,000,-
1/10-2/10 12 51,000,-
5/10 12 51,000,-
Veiðitilhögun
Fjöldi stanga: 18 í sept og 12 í okt
Skipting daga: Heilir dagar og skipt um svæði kl 14:00.
Daglegur veiðitími: Veitt frá kl 8-20 án hlés
Agn: Blandað agn
Kvóti: Kvóti er 3 smálaxar undir 70 cm á stöng á vakt en sleppa ber laxi 70 og yfir.
Sleppa skal laxi yfir 70cm án undantekninga og fá veiðimenn gjöf sleppi þeir stórlaxi í kistur.
Sleppa skal öllum silungi lifandi í ána aftur.
———————————————————————————————————————-
Hólsá Austurbakki Aðalsvæði er staðsett í Rangárvallasýslu og er á meðal betri veiðisvæða landsins.
Frábært veiðisvæði fyrir allt að 12 manna hópa sem vilja vera sjálfum sér nægir.
Allur lax sem gengur í Þverá og Rangárnar fer í gegnum Hólsá og er því gríðarlegt magn af laxi sem fer þarna í gegn.
Það eru margir vinahóparnir og stórfjölskyldurnar sem koma í Hólsá ár eftir ár enda fer þar saman mjög góð aðstaða og frábær veiði.
Verðskrá
6 stangir seldar saman í tvo daga
Leyfilegt er að veiða á flugu, maðk og spón
Verð á stöng pr dag
Dags Stangir Félagsmenn
21/9-23/9 6 57,500,-
23/9-25/9 6 57,500,-
Veiðitilhögun
Fjöldi stanga: 6 stangir seldar saman
Skipting daga: 2 dagar hálfur, heill og hálfur og dagur
Daglegur veiðitími: Veitt frá kl 8-20 án hlés
Agn: Fluga, maðkur og spónn
Kvóti: 3 laxar undir 70 cm á stöng á vakt, stærri lax skal sleppt. Öllum sjóbirtingi skal sleppt án undantekninga.
———————————————————————————————————————-
Affallið lætur ekki mikið yfir sér þar sem hún rennur hæglátlega milli Austur og Vestur Landeyja. Tær en ekki stór bergvatnsá.
Áður fyrr rann kvísl úr Markarfljóti í Affallið en eftir fyrirhleðslur á Markarfljótseyrum varð Affallið tær bergvatnsá.
Veiðin er fyrst og fremst laxveiði en sjóbirtingur hefur alltaf gengið í ána. Bleikja finnst þar einnig í litlum mæli.
Verðskrá
4 stangir seldar saman í tvo daga
Leyfilegt er að veiða á flugu og maðk
Verð á stöng pr dag
Dags Stangir Félagsmenn
29/9-1/10 4 40,750,-
11/10-13/10 4 40,750,-
Veiðitilhögun
Fjöldi stanga: 4 stangir seldar saman
Skipting daga: 2 dagar hálfur, heill og hálfur og dagur
Daglegur veiðitími: Veitt frá kl 7-13 og 14-20
Agn: Fluga og maðkur
Kvóti: Hirða má 3 smálaxa á stöng á vakt. Sleppa skal laxi yfir 70 cm og sjóbirting.