Forúthlutun 2026 helstu upplýsingar

Forúthlutun 2026

Opnað hefur verið fyrir umsóknir félagsmanna SVFK til forúthlutunar hér á heimasíðunni.
Félagsblaðið/söluskráin okkar er á lokametrunum og fer í dreifingu öðru hvoru megin við helgi.
Hér neðar eru uppl og hlekkir á flest sem skiptir máli í ferlinu

Umsóknir berist félaginu á þar til gerðu umsóknarformi sem er að finna á heimasíðu félagsins fyrir kl 16 miðvikudaginn 8. apríl.

Eingöngu þeir sem eru félagar í SVFK, eru skuldlausir og hafa greitt félagsgjöldin eiga rétt á að taka þátt í forúthlutuninni.
Öllum félagsmönnum á að hafa borist rukkun fyrir gjaldinu á heimabankann sinn. Hafi hún ekki borist þá endilega látið vita sem fyrst svo það hafi ekki áhrif á vinnslu umsókna.

  • Aðeins skuldlausir félagar koma til greina við úthlutun leyfa.
  • Kynnið ykkur vel úthlutunarreglurnar áður en sótt er um.
    Sjá hér úthlutunarreglur
  • Úthlutun og sala veiðileyfa SVFK fyrir árið 2026.
    Umsóknir berist félaginu á þar til gerðu umsóknarformi sem er að finna á heimasíðu félagsins fyrir kl 16 miðvikudaginn 8. apríl
    Úthlutun sjálf fer fram 9. apríl kl 18:30 og skulu veiðimenn athuga með leyfin sín með því að mæta á skrifstofuna, senda tölvupóst eða hringja
    Allir fá senda staðfestingu á móttöku í tölvupósti frá félaginu, fyrr er umsóknin ekki gild.
    Athugið að staðfestingar á umsóknum geta lent í ruslpóstinum.
  • Skráin með þeim dögum sem lausir eru til umsóknar er á síðunni og má sjá þar skiptinguna á dögunum.
    Athugið, það þarf að rúlla alveg niður fyrir Vesturhópsvatn til að sjá þá daga sem við höfum til umráða á öðrum svæðum en okkar eigin en það eru dagar frá SVFR og Kolskegg
    Einnig eru ofar dagar frá SVH í Djúpavatni og Hlíðarvatni.
    Má geta þess að félagsmenn okkar fá leyfin frá SVFR og SVH á sömu kjörum og félagsmenn þeirra fá þau.
    Öllum þessum dögum verður skilað aftur til baka um leið og forúthlutun lýkur
  • Fljótlega eftir að úthlutun lýkur verða laus leyfi sett inn á nýja vefverslun á heimasíðunni til almennrar sölu.
  • Skrifstofa SVFK verður opin frá kl. 18:30-20:30 á miðvikudagskvöldum eftir að forúthlutun lýkur eða fram í miðjan í maí . Hægt er að hringja á skrifstofuna alla daga og ná þannig sambandi við Arnar sölumann veiðileyfa.
  • Veiðileyfaskrá 2026 Hér má sjá skiptinguna á þeim dögum sem er til úthlutunar
  • Smellið hér fyrir umsóknarform Forúthlutun 2026
  • Verðskrárnar eru á heimasíðunni nema þeir dagar sem eru í umboðssölu, nánari uppl um verð og ofl eru í félagsblaðinu