Staðsetning
Hrolleifsdalsá er í Hrolleifsdal sem liggur til suðausturs inn í Tröllaskagafjallgarðinn upp frá Sléttuhlíð við austanverðan Skagafjörð. Dalurinn er sagður kenndur við Hrolleif landnámsmann. Áin fellur í austanverðan Skagafjörð um 18 km. norðan Hofsóss rétt sunnan við kirkjustaðinn Fell í Sléttuhlíð. Þar bjó forðum galdraklerkurinn Hálfdán á Felli.
Þetta skemmtilega veiðisvæði býður upp á mjög fallega sjóbleikju, urriða og laxavon.
Leiðarlýsing að húsi
Húsið er frekar lítið og staðsett ofan vegar í landi Tjarna. Ekinn er þjóðvegur nr. 76 að bænum Tjarnir og þar tekin hægri beygja inn á slóða sem liggur að veiðihúsi. Hægt er að aka um neðri veiðistaði árinnar en til að komast fram á dal þarf að nota tvo jafnfljóta.
Veiðihús
Veiðihús er við ána. Húsið er með tveimur tveggja manna herbergjum auk svefnlofts. Einnig er góður svefnsófi á staðnum. Þá er einnig heitt vatn ásamt sturtu. Húsið er rafvætt og helstu tæki eru til staðar, svo sem eldavél, ísskápur, kaffivél, brauðrist ofl. Gasgrill er á staðnum.
Veiðimenn mega koma í veiðihúsið einni klukkustund áður en veiði hefst og skulu rýma húsið klukkan 14 brottfarardag. Veiðimönnum ber að þrífa húsið fyrir brottför og fjarlægja rusl.
Veiðimenn leggja sjálfir til sængur, sængurfatnað, tuskur og viskustykki.
Árnefndarformaður er Arnbjörn Arnbjörnsson s 893 9329.
Veiðitilhögun
Fjöldi stanga: 3
Skipting daga: Tveggja daga holl (hálfur, heill og hálfur dagur)
Veiðitími: 20. júní – 20. sept.
Agn: Fluga, spónn og maðkur frá ósi upp að brú. Spónn bannaður fyrir ofan brú.
Daglegur veiðitími
20. júní til 14. ágúst frá kl 7-13 og 16-22
14. ágúst til 20. sept. frá kl 7-13 og 15-21.
Panta veiðileyfi
Mynd | Staður | Vara | Lýsing | Verð | Staða | Aðgerð |
---|