Skilmálar
Skilmálar þessir gilda um sölu á veiðileyfi frá netverslun SVFK.is. Skilmálarnir skilgreina réttindi og skyldur seljanda annarsvegar og kaupanda hinsvegar. Sé kaupandi neytandi í skilningi 3. mgr. 1. gr. laga nr. 48/2003 um neytendakaup og ákvæði þeirra laga eru kaupanda hagstæðari en ákvæði þessara skilmála, þá skulu þau gilda framar ósamrýmanlegum ákvæðum skilmálanna. Sé kaupandi lögaðili þá gilda ákvæði laga nr. 50/2000 um lausafjárkaup.
Kaupandi samþykkir skilmála þessa þegar gengið er frá kaupum í netverslun SVFK.is og eru þeir grundvöllur viðskipta.
Upplýsingar um seljanda
Seljandi er Stangaveiðifélag Keflavíkur kt. 620269-0509, Hafnargötu 15, 230 Reykjanesbær. Kaupandi er sá sem gengur frá pöntun í verslun.
Verð og verðbreytingar
Öll verð á síðunni eru uppgefin í íslenskum krónum og innihalda ekki virðisaukaskatt þar sem veiðileyfi eru undanþegin virðisaukaskatti. SVFK.is áskilur sér rétt til að hætta við pantanir, t.d. vegna rangra verðupplýsinga og einnig að breyta verðum eða hætta að bjóða upp á veiðileyfi fyrirvaralaust.
Greiðslur
SVFK.is býður upp á að greitt sé fyrir vörur með greiðslukorti. Kortafærslur fara fram á öruggri greiðslusíðu hjá Straumi greiðslumiðlun. Hafi kaupanda verið gefið upp rangt verð, t.d. vegna mistaka við innslátt eða bilunar í vinnslukerfi þegar hann staðfesti kaup á veiðileyfi, verður honum þegar í stað tilkynnt um verðbreytingu og gefinn kostur á leiðréttingu eða að hætta við kaupin.
Afhending veiðileyfa
Veiðileyfi eru afhent rafrænt í gegnum tölvupóst. Kvittun fyrir kaupum gildir sem veiðileyfi. Kaupandi skal tryggja að rétt netfang sé gefið upp við pöntun.
Ábyrgð kaupanda
Veiðileyfi eru háð framboði og gildistíma sem tilgreindur er í lýsingu leyfisins. Kaupandi ber ábyrgð á að fylgja almennum umgengis-, og veiðireglum sem gilda um veiði á tilteknu svæði og finna má hér á heimasíðu félagsins, sem og sérreglum sem gilda á flestum veiðisvæðum. Kaupandi skal hafa gilt veiðileyfi meðferðis á meðan veiði stendur yfir.
Skilaréttur neytenda
Veiðileyfi sem keypt eru hjá SVFK.is eru undanþegin almennum rétti til endurgreiðslu samkvæmt lögum um neytendasamninga. Þau eru því almennt ekki endurgreidd, nema í sérstökum tilvikum, svo sem þegar veiðisvæði lokast af óviðráðanlegum orsökum. Hafðu samband við okkur í gegnum netfangið [email protected] ef óskað er eftir breytingu eða afbókun á veiðileyfum.
Galli í skilningi laga um neytendakaup
Ef veiðileyfið eða veiðisvæðið reynist ekki í samræmi við þær upplýsingar sem gefnar voru við kaup, svo sem ef svæðið er lokað eða óaðgengilegt, vinsamlega hafðu samband við okkur án tafar með því að senda tölvupóst á [email protected]. Við munum gera okkar besta til að leysa málið með sanngjörnum hætti í samræmi við gildandi lög um neytendakaup.
Trúnaður
Seljandi heitir kaupanda fullum trúnaði um allar þær upplýsingar sem kaupandi gefur upp í tengslum við viðskiptin. Upplýsingar frá kaupanda verða ekki afhentar þriðja aðila undir neinum kringumstæðum.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Úrskurðaraðili vegna ágreinings á sviði neytendamála er kærunefnd vöru- og þjónustukaupa.
Kærunefnd vöru- og þjónustukaupa
Borgartún 21, 105 Reykjavík
kvth.is
Lög og varnarþing
Skilmálar þessi eru í samræmi við íslensk lög. Rísi mál vegna þeirra, skal það rekið fyrir Héraðsdómi Reykjaness.