NÝ HEIMASÍÐA
Vinna við nýja heimasíðu er á lokametrunum og munum við henda henni í loftið í vikunni ásamt forúthlutun veiðileyfa fyrir komandi vertíð.
FÉLAGSBLAÐ/SÖLUSKRÁ
Vinna við félagsblaðið/söluskrá er langt á veg komin og setjum við inn tilkynningu um leið og það verður klárt til dreifingar.
Skilafrestur umsókna verður svo auglýstur á síðari stigum.
FÉLAGSGJÖLD
Við viljum einnig minna félagsmenn á að greiða félagsgjaldið fyrir árið í ár sem og eldri gjöld ef þau eru ógreidd.
Aðeins skuldlausir félagar koma til greina við úthlutun.