SVFK hefur fengið daga í umboðssölu frá SVFR daga í Langá á Mýrum sem er ein af gjöfulustu laxveiðiám landsins.
Dagarnir standa eingöngu félagsmönnum til boða á meðan á úthlutun stendur.
Langá á Mýrum býður upp á fjölbreytta veiðistaði með góðu aðgengi en alls eru 93 skráðir veiðistaðir.
Meðalveiði síðustu 10 ára er 1236 laxar
Veiðihúsið Langárbyrgi er á bökkum Langár og er með þjónustu eins og best verður á kosið og er með 12 tveggja manna herbergjum með sér baðherbergi. Einnig er gufubað á staðnum þar sem menn geta látið líða úr sér.
Full þjónusta er í húsinu allan veiðitímann
Verðskrá
Verð á stöng pr. dag
Tveir dagar, hálfur, heill, hálfur
Dags Stangir Félagsmenn
24/7-26/7 12 225,000,-
15/8-17/8 12 117,000,-
Fæði/gisting
37,900 á mann pr dag ( 5,000 auka ef einn í herbergi)
Veiðitilhögun
Fjöldi stanga: 12
Skipting daga: Hálfur heill og hálfur
Agn: Fluga
Kvóti: Tveir á vakt á stöng undir 70 cm. Sleppa skal öllum fiski 70cm og lengri
Staðarhaldari veitir nánari uppl um veiði og fyrirkomulag. Tekur á móti veiðimönnum, sér um skiptingu svæða og fer yfir veiðireglur
Nánari uppl á www.svfr.is/lang